Svínka
Babygirl
ég segi eitthvað. Það vita það líklegast flestir núna við Elfar
erum búin að eignast yndislega litla stelpu. Vefsíðuna hennar má
nú ekki ráð fyrir að ég muni nota tímann minn sem ég hef aflögu í
að skrifa inn á þá síðu og setja inn myndir. Þess vegna geri ég nú
ekki ráð fyrir að skrifa meira inn á þessa síðu en ég ætla svo sem
að halda áfram að hafa hana ef ske kynni að ég hefði frá einhverju
öðru en stelpunni minni að segja. Ég efast hins vegar stórlega um
það enda er hún allt mitt líf þessa dagana og mun líklegast vera
það áfram. Ég hef allaveganna ekki minnstu löngun til að gera
eitthvað annað en að horfa á hana og vera með henni núna. Ég segi
þetta því gott í bili en endilega fylgist með á
barnanet.is/babygirl, ég segi kannski frekar samhliða sögum af
henni hvað við erum svona að gera.
Vatnið bara farið :)
segja en að þessi stelpa viti hvernig mömmu sinni líður, já
stelpa segi ég, Elfar missti það út úr sér í öllum
spenninginum áðan við mömmu sína að þetta væri stelpa þannig
að nú vita það allir held ég :) Allaveganna kl 22:45 þegar
Elfar var að koma inn úr dyrunum þá heyrir hann óp í mér inn á
baði en í því fossaði svoleiðis út úr mér á gólfið og það er
búið að vera að því síðan. Vá hvað ég var fegin að vera ekki í
skólanum á þeim tíma - ég ætlaði einmitt að mæta kl 10 í
fyrramálið :) Við hringdum uppí Hreiður og fengum að fara í
skoðun jafnvel þótt það væri ekki þörf á því víst
samdrættirnir voru ekki byrjaðir. Erum svo komin heim aftur og
eigum að mæta aftur kl 9 í fyrramálið þ.e.a.s. ef ég
samdrættirnir verða ekki orðnir reglulegir og sárir fyrir þann
tíma (er aðeins farin að finna fyrir þeim núna). Ég verð að
minnsta kosti sett af stað innan sólarhrings ef þetta gerist
ekkert að sjálfu sér. Við erum hérna tvö að farast úr
spenningi :) :) :) :) Vá hvað ég er ánægð með þessa stundvísi
Bara vika !!
þessu, nú skil ég sko vel af hverju konur kvarta undir lokin.
Ég er bara eins og önnur manneskja, ég vil helst ekki fara út
úr húsi og er alltaf einhvern veginn annars hugar. Svo er
hormónastarfsemin alveg að gera út af við mig, ég held reyndar
að þetta væri ekkert mikið mál ef ég væri bara í fríi eins og
flestar stelpur/konur eru núna farnar að gera undir lokin en
ég verð hins vegar alltaf svo pirruð á sjálfri mér þegar ég er
svona löt. Ég er eiginlega ekkert búin að mæta í skólann í
vikunni. Ég gerði tilraun í gær, mætti kl 8, þraukaði einn
tíma en þegar annar tíminn var hálfnaður þá gat ég ekki meir
og fór heim að sofa. Svo er ég búin að fá BA ritgerðina mína
til baka þ.a. núna á ég að vera á fullu að vinna í henni svo
ég geti skilað henni áður en ég á að eiga, dugnaðurinn lætur
líka á sér standa þar þ.a. þetta verður nú líklegast eitthvað
tæpt hjá mér. Ég er farin að vera ansi svartsýn á að ég geti
tekið tvö próf, miðað við hvað ég kem litlu í verk núna þá
efast ég um að ég verði miklu duglegri þegar barnið er komið.
Ég nenni bara ekkert að vera að spá í því - mig langar bara í
dúlluna mína og vil helst ekkert hugsa um neitt annað. Ég er
sem sagt bara bara komin með nóg af sjálfri mér, finnst
leiðinlegt að vera tvöfalt stærri alls staðar og anda eins og
offitusjúklingur - það er alveg fáránlegt hvað ég anda hátt.
Það er svo margt svona sem er eitthvað svo skrítið, svo ég
tala nú ekki um hvað ég slefa mikið á nóttunni - hvað er málið
með það að vakna alltaf með rennandi blautan kodda nokkrum
sinnum á nóttu. Ég hef oft heyrt að sumur gaurum finnast konur
extra kynþokkafullar þegar þær eru ófrískar, það getur nú ekki
verið að það eigi við svona þessar síðustu vikur - allaveganna
ekki í mínu tilfelli, það eru reyndar örugglega ekki margar
Ég er hins vegar alls ekki komin með leið á því að hafa dúlluna
mína inn í mér - finnst alltaf jafn gaman að finna hreyfingarnar og
spörkin :) Núna er líka bara allt orðið tilbúið fyrir hana - við
erum búin að fá alla stóru mikilvægustu hlutina og ég er búin að
þvo öll fötin og svona. Við vorum að fá það síðasta á sunnudaginn
en það var barnarúmið. Eins og ég hef örugglega minnst á áður þá
keyptum við notað rúm í góða hirðinum. Við fórum með það vestur og
tengdapabbi ætlaði að mála það fyrir okkur. Hann lét sér það hins
vegar auðvitað ekki nægja frekar en venjulega heldur breytti því
aðeins þ.a. núna eigum við bara miklu fallegra barnarúm heldur en
við hefðum átt ef við hefðum keypt glænýtt úr IKEA. Þetta er svo
2 vikur
Annars bjó ég til óskalista á síðunni fyrir litla krílið að ósk
Daðeyjar en það er samt algjör óþarfi að vera að kaupa eitthvað. Ef
fólk vill endilega kaupa eitthvað smávegis þá eru leikföng vel
þegin, við erum ekkert búin að kaupa neitt svoleiðis. Fyrir þá
náskyldu sem vilja kaupa eitthvað stærra þá ættu þeir kannski að
hringjast aðeins á svo að þeir kaupi ekki allir það sama :) Annars
er svo sem ekkert mál að skipta og finna eitthvað annað í þessum
Dúlleg maður
degi - endalaust dugleg. Það er nú reyndar ekki mikið sem ég
hef að segja. Ég vildi aðallega vekja athygli á því að ég er
búin að búa til síðu fyrir litla barnið okkar á barnaneti.is
og það er tengill hérna til hliðar - "litla krílið". Fyrir þá
sem vilja ekki vita kynið fyrr en barnið fæðist þá verða þeir
bara að sýna þolinmæði og ekki skoða síðuna fyrr en þá.
Reyndar verður nú varla mikið líf á henni fyrr en barnið
fæðist en þá ætla ég að reyna að vera dugleg að setja inn
myndir og segja sögur - já ég eða við, ég reyni nú kannski að
fá Elfar til þess líka. Ég veit ekki alveg hvernig það verður
þá með þessa síðu. Ég ætla allaveganna að halda henni í bili
en ég sé svo bara til hvort ég nenni að skrifa á þær
Varðandi skemmtilegu framhaldssöguna mína í morgun þá náði ég að
sofna aftur og svona líka rosalega fast, ég nennti varla að vakna
þegar síminn hringdi. Hins vegar vaknaði ég vel þegar ég var að
keyra út úr "bílskúrnum okkar" (þ.e. bílastæðahúsinu á
laugarveginum) en þá var virðulegur maður í frakka að fá sér að
míga í húsasundinu beint á móti. Er þetta bara ég eða finnst
fleirum það fyndið að fullorðnir menn séu að gera svoleiðis klukkan
dönskunámskeiðið í dag og ég hugsa jafnvel að ég láti þetta bara
ókei ókei
að kvarta yfir bloggletinni í mér - mér finnst ég nú bara
aldrei hafa neitt að segja enda er það eina sem ég geri er að
vera ólétt, fara í skólann og glápa á sjónvarpið. Ég er líka
mjög busy með þessu dönskunámskeiði og íhuga daglega hvort ég
eigi ekki að hætta þessu, ég bara dálítið þrjósk. Ég þorði
reyndar ekki að segja ljósunni minni frá því þegar hún spurði
hvort ég væri ennþá að mæta í skólann enda held ég að henni
finnist það nú bara alveg nóg - reyndar sagði hún í sambandi
við skólann að hún myndi ekkert vera að ráðleggja mér að hætta
á meðan ég vildi halda áfram vegna þess að ég er með svo fínan
blóðþrýsing og svona. Ég get samt ekki annað sagt en að ég
hafi tíma til að blogga núna en eins og það mun sjást á
tímasetningunni á þessari færslu þ.e.a.s. ef hún verður ekki
vitlaus þá er klukkan ekki einu sinni orðin sjö að morgni. Ég
á bara dálítið erfitt með svefn þessa dagana - þegar allt
þetta blandast saman - verkir vegna bjúgs (sem eru vestir),
stanslaus nábítur, sífelld þörf fyrir að pissa svo ég tali nú
ekki um óþægindin við að sofa með þessa risa bumbu - þá er
bara erfitt fyrir mig að sofa vel heila nótt. Í þetta skiptið
kom mér það skemmtilega á óvart hvað ég átti auðvelt með að
sofna (enda mjög þreytt alltaf því ég á líka erfitt með að
leggja mig á daginn sem hefur aldrei verið vandamál hjá mér
áður) og ég svaf svona líka vel alveg þangað til klukkan var
að verða sex. Eftir að hafa reynt að sofna aftur í dálítinn
tíma með ansi mikið garnagaul þá ákvað ég bara að fara aðeins
á fætur fá mér að borða og nú gera flestir ráð fyrir að ég
hafi sest fyrir framan imbann eða eitthvað en nei nei ég fór
að læra, enda er ég búin að komast að því að ekkert er meira
svæfandi :) Núna er ég hins vegar orðin dauðþreytt aftur og
ætla að reyna að sofna aftur, þetta er nefnilega sem betur fer
svo mikill lúxus dagur hjá mér því skólinn byrjar ekki klukkan
10 þar sem fyrstu tveir tímarnir mínir detta niður. Ef ég næ
tveimur tímum í viðbót þá verð ég nú heldur betur sátt ---- to
be continued ----spennandi......nær Rakel að sofna aftur??
Þetta er svona álíka spennandi og lífið er hjá mér þessa
dagana. Nei ég lýg því reyndar, þetta er náttúrulega mjög
spennandi allt saman, en ég er bara búin að vera svona svo
lengi að ég er bara orðin spennt fyrir því að eiga litla
3 vikur
niðurtalningu ha :) Mér finnst tíminn líða rosalega hratt
þessa dagana, ég er frekar busy vegna þess að ég er að reyna
að koma svo miklu í verk áður en barnið og alles kemur.
Tölvuherbergið/gestaherbergið okkar en núna orðið svona
tölvuherbergi/gestaherbergi/barnaherbergi :) Reyndar alls ekki
svona týpískt barnaherbergi - barnið kemur náttúrulega til með
að sofa inni hjá okkur fyrsta árið þannig að eftir allt þetta
baðdæmi þá nennum við nú ekki alveg að fara að gera herbergið
upp núna, kannski gerum við eitthvað skemmtilegt í sumar. En
þangað inn er allaveganna komið skiptiborð núna (sem ég er
meira að segja búin að setja bleiur í :)), bílstóll og fl. sem
barninu fylgir - svo er ég búin að taka til í kommóðunni og
setja barnaföt og dót í hana. Núna þarf ég því bara að kaupa
að kaupa það allra mikilvægasta, sem barnið þarf svona fyrstu
eina til tvær vikurnar svo ég þurfi ekki að fara að stessa mig
yfir því að eitthvað vanti þegar ég á að vera að slappa af -
en eins og flestir vita þá þarf nú ekkert mjög mikið til að
Mitt í öllu þessu dæmi, undirbúningur fyrir barnið, reyna að læra
sem mest og klára BA ritgerðina (ef ég fæ hana einhvern tímann til
baka) þá fannst mér alveg gríðalega sniðugt að bæta aðeins við mig
í náminu 8| Ég var reyndar gríðalega hikandi en mér fannst ég bara
ekki geta sleppt þessu námskeiði. Þetta er námskeið í lagadönsku en
samt sem áður ákvað ég fyrir mörgum árum að læra dönsku bara rétt
svo nógu vel til að ná henni auðveldlega í skóla, ég mun sem sagt
ekki geta haldið mig við þá ákvörðun - kannski bara of mikil
bjartsýni til að byrja með. Það hefur nefnilega komið í ljós að
þetta er eitt mikilvægasta tungumálið, sem maður þarf að kunna
þegar maður lærir lögfræði á Íslandi vegna þess að íslenskur réttur
tekur mjög mikið mið af dönskum rétti. Námsefnið er reyndar ekki
mikið á dönsku (ég hef sleppt því að lesa það hingað til en ég get
það væntanlega ekki í ár) en ég þurfti að lesa slatta fyrir BA
ritgerðina og ég veit að ég kem til með að þurfa þess í framtíðinni
í starfi mínu sem lögfræðingur. Allaveganna þá verð ég á þessu
námskeiði í tvær vikur þ.a. núna er ég í skólanum frá 8-12 og svo á
þessu námskeiði frá 16-19 þ.a. ég kem nú bara engu í verk eiginlega
fyrir utan það. Ég er nefnilega líka að reyna mitt í öllu þessu að
fara vel með mig - ég sef rosalega illa á nóttunni, er komin með
svo mikinn bjúg að mig verkjar alveg í höndunum þ.a. ég vakna svo
oft við það. Þess vegna legg ég mig alltaf í svona klukkutíma eftir
skóla og af því að ég er alltaf svo lengi að gera allt þá geri ég
nú bara ekki mikið meira á milli 12 og 16 á daginn. Svo reyni ég
bara að læra aðeins á kvöldin. Úff ég verð bara af því að segja frá
Bara fjórar vikur !!!
vikur í áætlaðan fæðingardag. Mér finnst tíminn frekar lengi
að líða núna en samt líka óraunverulegt hvað það er stutt í
þetta. Ástæðan fyrir því að ég vil að barnið komi bara núna er
sú að ég er orðin ansi þreytt á þessu óléttustandi, ég kem mér
rétt í skólan á morgnana og svo til baka en ég nenni mjög
lítið út það sem eftir er dagsins. Svo hlakka ég náttúrulega
ótrúlega mikið til að sjá litlu dúlluna mína. Hins vegar á ég
svo sem eftir að gera slatta áður en það kemur, bæði hérna
heima og í skólanum þ.a. í raun hentar mér betur að eiga á
réttum tíma. Þrátt fyrir að mér finnst ég vera búin að bíða
svo lengi þá finnst mér samt ennþá frekar óraunverulegt að
fljótlega er ég að verða mamma. Ég - MAMMA!! Í mínum huga er
ég ennþá 18 ára krakki, mér finnst ennþá fáránlegt að ég skuli
vera komin í háskóla og vera rúmlega hálfnum með
lögfræðinámið. Það er sem sagt ekkert mjög langt í það að ég
verði bæði lögfræðingur og mamma - vá hvað ég er að verða
fullorðin - samt svo langt því frá, ég held einhvern veginn að
ég muni aldrei taka sjálfa mig neitt alltof alvarlega :) Sem
er örugglega bara fínt. Ég ætla mér samt auðvitað að standa
mig, ég meina við Elfar verðum náttúrulega helstu fyrirmyndir
þessa litla krílis næstu árin. Æji þetta er eitthvað svo
óraunverulegt allt saman, mér þykir nú þegar náttúrulega
rosalega vænt um það og finnst ég alveg rosalega náin því en
ég held að maður geti nú bara aldrei verið alveg viðbúin
þessari rosalegu breytingu. Ég meika örugglega ekki mikið sens
núna en svona starfar hugurinn í óléttri konu - ég er búin að
Alltaf jafn snemma í því
það að þurfa að flýta mér í umferðinni, ég bara geri mér grein
fyrir því að ég er ekki besti bílstjóri í heimi og veit að
eftir því sem ég keyri hraðar eru minni líkur á því að mér
takist að forðast árekstri ef eitthvað kemur upp á. Í dag
pældi ég ekki í neinu svoleiðis. Ég var vakandi í gær til
klukkan, æji ég veit það ekki alveg, sofnaði einhvern tímann á
milli 2 og 3 vegna þess að ég var að lagfæra ritgerðina mína.
Ég átti töluvert eftir af henni og ákvað því bara að sleppa að
mæta í skólann enda verð ég nú líka að fá dálítinn svefn þessa
dagana. Ég vaknaða kl 10 og sat sveitt yfir ritgerðinni nánast
án þess að líta upp til kl 14:45. Þá neyddist ég til að hætta
enda átti ég að skila ritgerðinni á skrifstofu lagadeildar
fyrir lokun og hún átti að loka kl 15. Á meðan ritgerðin var
að prentast út henti ég mér úr náttfötunum og í föt. Hljóp svo
út (en ég nú ekki vön því í þessu ástandi :)) illa lyktandi,
ómáluð og með hárið út um allt. Brunaði á bílnum upp í skóla,
lagði í stæði, hljóp upp á 4. hæð en þar er skrifstofan og
þegar þangað var komið áttaði ég mig á því að það voru ennþá
alveg 3 mínútur þangað til það átti að loka. Já maður getur
gert ýmislegt þegar adrenalínið er á fullu, ég sem er
yfirleitt í nægum vandræðum við það eitt að klæða mig í skó
Annars gleymdi ég í gær að lýsa ánægju minni yfir því að Silvía
Nótt skyldi vinna júróvision. Ég hef nú ekki verið mikill aðdáandi
hennar, aðallega vegna þess að ég fíla ekki þættina hennar en mér
finnst hún hins vegar fyndin ef maður horfir ekki á meira en svona
10 mínútur í einu. Svo var ég líka bara sátt við úrslitin að öðru
leyti, mér fannst reyndar bara eitt lag í þessari keppni eitthvað
flott og það var lagið sem Regína söng þ.a. það var fínt að hún
virðist hafa fengið bara já næstum því restina af atkvæðunum. Þó
svo að mér hafi fundist það lag flottast þá vildi ég samt miklu
meira að Silvía myndi vinna einfaldlega vegna þess að mér finnst
Eurovision hvort sem er svo leiðinleg að það er bara eina vitið að
Að lokum ætla ég bara að benda á að mér tókst að finna tvær nýlegar
myndir af mér þar sem ég er ekki með bera bumbuna þ.a. ég setti þær
inn í meðgöngumyndamöppuna hérna til hliðar. Reyndar er bara önnur
þeirra svona alvöru bumbumynd á hinni sem er tekin þegar við vorum
að gera upp baðið er nú bara eins og ég sé þybbin stelpa með stór
brjóst :) (sem ég er náttúrulega núna en ég vona að tengist
Konudagur
að koma mér á óvart en ég var búin að steingleyma því að þessi
dagur væri í dag - ég man ekkert frekar eftir deginum mínum
heldur en deginum hans, þ.e bóndadeginum :S Elfar hefur frekar
oft í okkar sambandi reynt að koma mér einhvern veginn á óvart
en mér tekst alveg fáránlega oft að skemma það. Ég man t.d.
eftir fyrst konudeginum eftir að við byrjuðum saman, (sem sagt
fyrir milljón árum þegar ég var bara 16 ára) þá bjuggum við
ennþá á Akureyri og við vissum ekki hvað það var að læsa
útidyrahurðunum (gömlu góðu dagarnir :)). Elfar vaknaði snemma
á sunnudagsmorgni, keypti blóm handa elskunni sinni og ætlaði
að vekja hana með því að færa henni þau. Aldrei þessu vant þá
hafði mín drifið sig á fætur snemma og farið út þ.a. hann
greip í tómt. Greyið kallinn. Það var nú samt gaman að koma
heim og finna blómvönd liggjandi á rúminu mínu en ég hefði nú
frekar viljað vera á staðnum heldur en að þurfa svo að hringja
í hann og spyrja hvernig það vildi til að þessi blóm væru
En já Elfar er sem sagt heima. Hann fór ekki vestur með danshópnum
vegna þess að veðurspáin var þannig að líklegt var að
steingrímsfjarðarheiðin yrði orðin ófær þegar hópurinn kæmi þangað.
Þessi heiði er nefnilega óútreiknanleg og hún er fljót að verða
ófær þegar hætt er að moka og hópurinn lagði svo seint af stað að
hann átti ekki að vera kominn þangað fyrr en svona tveimur tímum
eftir að hætt væri að moka. Elfar hefði nú oft tekið áhættuna en
hann hafði eitthvað slæma tilfinningu fyrir því og var ekki alveg á
því að fara út í eitthvað svona þegar ég væri ein heima ólétt. Hann
er greinilega farinn að finna fyrir ábyrgðartilfinningu núna en ég
var svo sem ekkert ósátt við þessa ákvörðun hans enda væri mér nú
frekar órótt ef að hann yrði ekki í símasambandi lengi, þó svo að
ástæðan væri kannski bara sú að hann væri fastur upp á heiði. Það
fór því þannig að hann ákvað að vera heima en restin af hópnum fór.
Það kom reyndar ekki til þess að þau reyndu við heiðina því hún var
orðin ófær áður en þau komu þ.a. þau ákváðu bara að gista í
Hólmavík. Það er náttúrlega bara skemmtilegt ævintýri út af fyrir
sig en Elfar var mjög ánægður með að hafa bara verið heima eftir að
hann frétti það, svona ævintýri eru ekki beint jafnt spennandi
fyrir hann enda hefur hann margoft lent í þeim á þessari leið. En
allaveganna síðast þegar ég vissi þá var hópurinn bara að renna í
bæinn á Ísafirði kl korter í eitt á laugardeginum en námskeiðið
Æji ég ætlaði....
Félagsskítur :)
alvöru - hér eftir mun fólk örugglega oftar heyra mig segja:
"nei ég kemst ekki", "nei ég treysti mér bara ekki alveg í
það", og jafnvel fljótlega "nei ég hef ekki pössun" (vá hvað
þetta síðasta verður fyndið :)) Ég er nefnilega frá og með
deginum í dag opinberlega orðinn félagsskítur. Af hverju í dag
en ekki áður? Það er ekki beint eins og ég sé búin að vera að
mæta á djammið í skólanum og frekar lítið í dansinn. En núna
eru bara að koma svona atburðir sem ég sleppi aldrei en ætla
samt að sleppa í þetta skiptið. Í kvöld er t.d. árshátíð
orators en bæði í grunnskóla, framhaldsskóla og í háskólanum
eru þetta atburðir sem ég er ekki að sleppa að mæta á,
sérstaklega þar sem ástæðan er einfaldlega sú að ég nenni því
bara ekki. Ég nenni ekki að fara að dressa mig eitthvað upp,
ekki séns að ég fari í háhælaða skó og svo finnst mér heldur
ekkert spennandi að fara fyrst heim, fyrir utan það að mér
finnst ekki gaman að sitja á meðan aðrir spreyta sig á
dansgólfinu. Svo á morgun er danshópurinn að fara vestur á
firði til að halda námskeið. Námskeiðin verða haldin á
Ísafirði, svo að sem flestir úr nágrannaþorpunum geti komið,
hópurinn gistir í húsi á Flateyri og hann ætlar svo á
Þorrablót á Þingeyri á laugardagskvöldinu. Eins spennandi og
þetta hljómar þá verð ég nú bara þreytt við tilhugsunina -
hvað þá ef við tökum með keyrsluna þangað - úff. En þetta
verður sem sagt í fyrsta skiptið sem ég sleppi því að fara í
ferð með hópnum. Elfar kallinn ætlar að skella sér með en ég
hvatti hann mjög til þess - um að gera að reyna að skemmta sér
aðeins áður en barnið kemur og öll svona ferðalög verða
erfiðari. Ég hlakka nú samt ekkert smá til í sumar, ég bara í
fríi og svo fær Elfar eitthvað sumarfrí (hann byrjar nefnilega
ekki fæðingarorlofi fyrr en í ágúst) og þá getum við t.d.
farið bara í frí vestur og virkilega stoppað eitthvað þar -
þurfum ekki að rjúka aftur í bæinn eftir þrjá daga eða
Jæja best að snúa sér að ritgerðinni - hver þarf á árshátið og
dansferð að halda þegar maður hefur skemmtilega BA ritgerð til að
Halló halló
að skoða síðuna mína allt í einu. Mér hefur fundist ég vera í
svo mikilli lægð blogglega séð að ég hef oft bara íhugað að
hætta með þessa síðu. Eina ástæðan fyrir því að ég hef ekki
gert það er sú að þó svo að ég sé alls ekki dugleg að skrifa
þá finnst mér stundum gott að fá útrás á síðunni enda finnst
mér nú ekki leiðinlegt að tala. Skrif mín gætu jafnvel aukist
til muna eftir að barnið fæðist jafnvel þótt ég verði meira
busy vegna þess að ég kem náttúrulega til með að fara sjaldnar
út og ekki nennir Elfar að hlusta á babblið í mér endalaust.
Krakkinn hlýtur reyndar að læra fljótt að tala eða allaveganna
að segja mér að þegja því það er nokkuð ljóst að ég mun láta
þörf mína til að tjá mig bitna á honum. Ég man t.d. að ég
talaði oft rosalega mikið við Tomma, köttinn minn sem ég átti
í einhver 10 ár - hmmm ætli hann hafi verið svona geðveikur
þess vegna??? Það er nú umhugsunarefni sem ég hef aldrei áður
velt fyrir mér. En allaveganna þá er svo sem önnur ástæða
fyrir því að ég hef ekki hætt með síðuna og hún er sú að ég á
svo mikið af vinum og vandamönnum nær og fjær sem ég tala (eða
skrifa) bara alltof sjaldan við og til að friða samviskuna þá
minni ég alltaf sjálfa mig á að þeir aðilar geti allaveganna
fylgst með því sem ég er að gera á þessari síðu. En pointið
mitt með öllu þessu var sem sagt að ég held að ég haldi nú
áfram þessu skriferíi þó svo að langur tími líði oft á milli
færslna og það er sérstaklega hvetjandi að sjá hvað margir
virðast lesa þetta. Svo gæti reyndar verið að þetta séu bara
nokkrir sorglegir einstaklingar sem hafa ekkert betra að gera
Annars er ekki mikið að frétta af mér. Ég er þessa dagana á fullu í
því að skrifa BA ritgerð en ég á að skila drögum að henni til
umsjónarkennara míns á mánudaginn. Ég ætla að reyna að hafa þessi
drög dálítið góð þ.a. ég þurfi síður að eyða miklum tíma í
leiðréttingar enda vil ég klára þessa ritgerð sem fyrst svo ég
þurfi nú ekki að hafa áhyggjur ef barnið kemur fyrir tímann. Svo
þarf ég nú líka bara að fara að einbeita mér að hinum fögunum enda
er ég nú ekki búin að vera dugleg að læra í þeim það sem af er
vetrar. Reyndar eru strax komin drög af próftöflu þ.a. ég hef nú
þegar ákveðið að taka ekki fyrsta prófið sem er réttarfar og ætla
þess vegna ekki að lesa fyrir það heima þó svo að ég mæti í tímana.
Það munar strax að þurfa bara að hugsa um tvö fög í staðinn fyrir
Svo var ég svo sniðug fyrir helgi að allt í einu fannst mér eins og
það væri bolludagur á mánudaginn, þ.e. í gær. Ég var nú ekkert
alltof spennt því þó svo að mér finnist bollur rosalega góðar þá
nennti ég ekki alveg að standa í bakstri á þeim þar sem ég hef nóg
að gera í að skrifa BA ritgerð og svo fer náttúrulega alltaf líka
tími í baðið (sem er nánast tilbúið :)) og ófædda barnið. Samt
ákvað ég nú að láta mig bara hafa það og keypti dót í bollur og
rjóma og svona. Svo ætlaði ég bara að byrja að baka enda held ég
meira uppá svona bolluhelgi eða næstum því bolluviku frekar heldur
en bara einn dag. Elfar var voða glaður yfir því þegar ég sagði
honum að það væri að koma bolludagur enda vissi hann ekki að hann
væri svona snemma. Ég fór þá og kíkti á dagatalið og hvað sá ég -
ekki fyrr en eftir tvær vikur þ.e. 27. feb. Ætli græðgin hafi ekki
Bara heill vinnudagur !!!
óeðlilegt að eyða 8 klukkutímum á dag fyrstu um sinn í brjóstagjöf,
svona á meðan móðir og barn eru að læra inn á hvort annað. 8 tímar
bara í brjóstagjöfina fyrir utan allt annað sem maður þarf að gera.
VÁ!!! Ég ætla bara að nýta tækifærið hér og biðjast afsökunar á því
fyrirfram ef ég verð eitthvað þreytt og pirruð þegar fólk kemur í
heimsókn til að kíkja á krílið. Ég hef nú alltaf ætlað mér að taka
svona eina til tvær vikur alveg í frí eftir að barnið fæðist en
byrja svo smá saman að læra undir prófin - þegar ég er í prófum þá
læri ég oftast svona 10 til 12 tíma á dag, jafnvel 14 síðasta
daginn - eitthvað held ég að ég geti nú ekki gert ráð fyrir að ná
meira en svona 3 - 5 tímum á dag í þessari próftíð. Það er nú svo
sem allt í góðu, það er allaveganna alveg ljóst hverju ég sleppi ef
ég finn að ég ræð ekki við þetta bæði í einu.
Ég gleymdi...
Barcelona núna og er svona smá saman að koma sér fyrir. Hann
skellti sér nefnilega bara þangað án þess að hafa svo mikið
sem gistingu, hvað þá eitthvað til að gera. Allaveganna þá
verður þetta eflaust síðan til að skoða ef maður vill lesa
djammsögur ef ég þekki bróðir minn rétt - eitthvað sem skortur
er á og mun vera skortur á, á þessari síðu ja ég segi nú
kannski ekki alveg næstu árin en hver veit :) Maður verður
hins vegar að taka sinn tíma í að lesa pistlana hans, enda
veður hann úr einu í annað eins og ég og notar punkta og
kommur ennþá minna en ég - boðar gott ;) Það var eiginlega
svolítið fyndið að hann byrjaði einmitt fyrsta pistilinn sinn
á því að vara við svona hlutum eins og stafsetningavillum en
ég hef bara sjaldan séð jafn lítið af þeim hjá honum eins og í
honum en svo kom þetta strax í næsta. Þetta er svona eins og
ég, er alltaf að afsaka mig fyrir að vaða úr einu í annað og
bara babbla endalaust mikið en það er samt ekki séns að ég
geti hætt því - það trúir því eflaust enginn að ég er hins
vegar mjög fín í að gera ritgerðir yfirleitt en þá er ég mikið
fyrir að fylgja forminu. Jæja nóg af babbli, best að skella